The Health On the Net Foundation (HON) is in the process of updating its web 2.0 guidelines. We would very much appreciate your help in this process and therefore ask you to give your feedback about web 2.0 platforms (forums, blogs, wikis, etc.).
To give your opinion, please select below if you are:
Allar leiðbeiningar um heilsufar og læknisfræðilega
ráðgjöf sem finna má á þessum vef eru veittar af fagfólki með tilskilin
réttindi. Berist upplýsingarnar annars staðar að verður þess skýrt
getið að þær séu fengnar frá aðilum eða stofnunum án tilskilinna
réttinda.
Upplýsingar á vefnum eru settar fram í þeim tilgangi
að bæta en ekki koma í stað þess sambands sem er á milli skjólstæðings/notenda
og læknis/sálfræðings.
Fullum trúnaði er heitið um vitneskju um skjólstæðinga
og notendur á vefnum og þar með persónuauðkenni þeirra. Eigendur
vefsins framfylgja lögum og reglum stjórnvalda um trúnaðarupplýsingar
á sviði lækninga og heilsufars.
Upplýsingar á vefnum sem berast annars staðar
frá verður getið og vísað á þær með HTML tengli, ef hægt er. Hver
síða verður dagsett þegar hún er uppfærð (t.d. neðst á síðunni).
Allar fullyrðingar á vefnum um árangur tiltekinnar
meðferðar, vöru eða þjónustu verða studdar viðeigandi og hlutlægum
gögnum, eins og skýrt er frá í reglu 4.
Hönnuðir vefsins hafa það að leiðarljósi að upplýsingar
verði aðgengilegar notendum og auðvelt sé að nálgast frekari fræðslu
og stuðning ef svo ber undir. Netfang vefstjóra kemur skýrt fram
á öllum vefsíðum.
Stuðningsaðilar vefsins verða nafngreindir, hvort
sem í hlut eiga viðskiptafyrirtæki, stofnanir, samtök eða félög
sem leggja til efni, fé eða þjónustu.
Á vefnum kemur ótvírætt fram ef auglýsingar eru
tekjulind. Forsvarsmenn vefsins birta stutta lýsingu á auglýsingastefnu
fyrirtækisins. Auglýsingar og annað kynningarefni mun ætíð skera
sig greinilega úr öðru efni sem er á vegum þeirra stofnunar sem
rekur vefinn.